Skil og skipti
Réttur neytenda til að falla frá kaupum
Neytendur geta fallið frá kaupum innan 14 daga frá því að varan barst þeim, án þess að tilgreina ástæðu (lög nr. 16/2016). Tilkynntu okkur það skýrlega, t.d. með tölvupósti á gspr@gspr.is eða með staðlaða eyðublaðinu.
Senda þarf vöruna til baka innan 14 daga frá tilkynningu. Kaupandi greiðir kostnað við endursendingu.
Við endurgreiðum allar greiðslur, þar með talinn upphaflegan sendingarkostnað (miðað við ódýrasta staðlaða afhendingarmátann), innan 14 daga frá því að tilkynning berst. Heimilt er að halda endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist eða sönnun um endursendingu liggur fyrir. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var.
Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af annarri meðhöndlun en nauðsynleg er til að ganga úr skugga um eðli hennar, eiginleika og virkni.
Undantekningar
Rétturinn gildir ekki um vörur sem eru framleiddar eftir forskrift kaupanda eða sérsniðnar að þörfum hans, innsiglaðar vörur sem ekki er hægt að skila af heilsuverndar- eða hreinlætisástæðum hafi innsigli verið rofið, né vörur sem eftir afhendingu hafa blandast öðrum hlutum þannig að ekki verður skilið á milli.
Fyrirtæki
Réttur til að falla frá samningi á aðeins við um neytendur. Fyrirtæki geta haft samband vegna skila sem samið er um sérstaklega.
Gallaðar vörur
Um gallaðar vörur gilda reglur laga nr. 48/2003 um neytendakaup, sjá skilmála.